Þessar bækur eru tilnefndar til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna

Þessar bækur eiga það sameiginlegt að vera allar tilnefndar til …
Þessar bækur eiga það sameiginlegt að vera allar tilnefndar til verðlaunanna. Ljósmynd/Samsett

30 hljóðbækur eru tilnefndar í sex mismunandi flokkum til Íslensku hljóðbókaverðlaunanna, Storytel Awards 2023. Verðlaunahátíðin er árlegur viðburður þar sem hljóðbókaunnendur og framleiðendur fagna saman útgáfu vönduðustu hljóðbóka undangengins árs. Höfundar ásamt lesurum, og í sérstökum tilfellum þýðendum, eru verðlaunaðir í sex flokkum, en þeir eru barna- og ungmennabækur, glæpasögur, skáldsögur, óskáldað efni, ljúflestur og hljóðseríur. Verðlaunaafhendingin fer fram í Hörpu þann 29. mars næstkomandi.

Í almennri netkosningu í janúar var fólki gefinn kostur á að kjósa sinn uppáhaldstitil í hverjum flokki fyrir sig í opinni kosningu. Kosið var á milli 25 hljóðbóka í hverjum flokki. Þetta voru þær hljóðbækur sem komu út árið 2022 og hlutu mesta hlustun og flestar stjörnur hjá Storytel í hverjum flokki fyrir sig. Í kjölfarið fara nú fimm efstu bækur hvers flokks úr kosningunni fyrir fagdómnefndir sem velja að lokum sigurvegara. Einnig fær yngri kynslóðin sinn fulltrúa í vali í barna- og ungmennaflokki.

Dómnefndirnar hafa það að leiðarljósi að líta heildstætt á hvert verk enda er það trú aðstandenda verðlaunanna að með vönduðum lestri á góðu ritverki megi bæta við upplifun lesandans og hljóðbókin sé þannig sjálfstætt verk. Því eru ekki aðeins rithöfundar verðlaunaðir heldur einnig lesarar verkanna og meðal tilnefndra er fjöldi landsþekktra leikara sem ljáð hafa sögupersónum rödd sína í hljóðbókum síðasta árs.

„Þetta er í fjórða sinn sem Íslensku hljóðbókaverðlaunin eru veitt og það er ánægjulegt að sjá hversu mikill vöxtur hefur orðið á hlustun og útgáfu hljóðbóka hér á landi á þessum tíma. Íslendingar hafa sannarlega tekið þessu nýja bókarformi opnum örmum. Í ár kynnum við svo inn nýjan flokk, þar sem við veitum í fyrsta skipti sérstök verðlaun fyrir bestu hljóðseríuna. Hljóðseríur eru sögur í nokkrum hlutum þar sem hljóðheimurinn spilar stórt hlutverk, í sumum verkum eru einnig leiklesnar senur og frumsamin tónlist,“ segir Lísa Björk Óskarsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Storytel á Íslandi.

Skáldsögur

Bréfið

Höfundur: Kathryn Hughes

Þýðandi: Ingunn Snædal

Lestur: Sara Dögg Ásgeirsdóttir

Útgefandi: Storyside

Konan hans Sverris

Höfundur: Valgerður Ólafsdóttir

Lestur: Margrét Örnólfsdóttir

Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa

Sjö eiginmenn Evelyn Hugo

Höfundur: Taylor Jenkins Reid
Þýðandi: Sunna Dís Másdóttir
Lestur: Erna Hrönn Ólafsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir

Útgefandi: Bókabeitan

Tilfinningar eru fyrir aumingja

Höfundur: Kamilla Einarsdóttir

Lestur: Saga Garðarsdóttir

Útgefandi: Bjartur

Þegar fennir í sporin

Höfundur: Steindór Ívarsson
Lestur: Lára Sveinsdóttir, Stefán Jónsson

Útgefandi: Storyside

Glæpasögur

Björninn sefur

Höfundur: Emelie Schepp

Þýðandi: Kristján H. Kristjánsson

Lestur: Kristján Franklín Magnús

Útgefandi: MTH útgáfa

Dauðaleit

Höfundur: Emil Hjörvar Petersen

Lestur: Hjörtur Jóhann Jónsson

Útgefandi: Storytel Original

Horfnar

Höfundur: Stefán Máni

Lestur: Rúnar Freyr Gíslason

Útgefandi: Sögur útgáfa

Þernan

Höfundur: Nita Prose

Þýðandi: Magnea J. Matthíasdóttir

Lestur: Kristín Lea Sigríðardóttir

Útgefandi: Forlagið

Þú sérð mig ekki

Höfundur: Eva Björg Ægisdóttir
Lestur: Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Haraldur Ari Stefánsson, María Dögg Nelson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Sigríður Láretta Jónsdóttir, Þórey Birgisdóttir
Útgefandi: Bjartur

Óskáldað efni

11.000 volt: Þroskasaga Guðmundar Felix

Höfundur: Erla Hlynsdóttir

Lestur: Rúnar Freyr Gíslason

Útgefandi: Sögur útgáfa

Elspa – saga konu

Höfundur: Guðrún Frímannsdóttir

Lestur: Valgerður Guðnadóttir

Útgefandi: Sögur útgáfa

Klettaborgin

Höfundur: Sólveig Pálsdóttir

Lestur: Sólveig Pálsdóttir

Útgefandi: Storyside

Sprakkar

Höfundur: Eliza Reid
Lestur: Eliza Reid, Maríanna Clara Lúthersdóttir

Útgefandi: Forlagið

Veran í moldinni – hugarheimur matarfíkils í leit að bata

Höfundur: Lára Kristín Pedersen
Lestur: Þuríður Blær Jóhannsdóttir
Útgefandi: Sögur útgáfa

Lára Kristín Pedersen.
Lára Kristín Pedersen.

Barna- og ungmennabækur

Kennarinn sem kveikti í

Höfundur: Bergrún Íris Sævarsdóttir

Lestur: Árni Beinteinn Árnason

Útgefandi: Bókabeitan

Bergrún Íris Sævarsdóttir.
Bergrún Íris Sævarsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Litla hafmeyjan

Höfundur: Anna Bergljót Thorarensen

Lestur: Andrea Ösp Karlsdóttir, Anna Bergljót Thorarensen, Sigsteinn Sigurbergsson, Stefán Benedikt Vilhelmsson, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir, Árni Beinteinn Árnason, Þórunn Lárusdóttir
Útgefandi: Leikhópurinn Lotta

Salka: Tölvuheimurinn

Höfundur: Bjarni Fritzson
Lestur: Þórdís Björk Þorfinnsdóttir

Útgefandi: Storyside

Skuggabrúin

Höfundur: Ingi Markússon
Lestur: Haraldur Ari Stefánsson, Jóhann Sigurðarson, Álfrún Helga Örnólfsdóttir

Útgefandi: Storytel Original

Trölladans

Höfundar: Friðrik Sturluson, Guðmundur Ólafsson
Lestur: Birna Pétursdóttir, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Guðmundur Ólafsson, Hallgrímur Ólafsson, Jóhann Sigurðarson, Mikael Emil Kaaber, Orri Huginn Ágústsson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Sigurjón Kjartansson, Stefán Hilmarsson, Vignir Rafn Valþórsson, Árni Tryggvason
Útgefandi: Storytel Original

Ljúflestur

Litla bakaríið við Strandgötu

Höfundur: Jenny Colgan

Þýðandi: Ingunn Snædal

Lestur: Esther Talía Casey

Útgefandi: Angústúra

Sagan af Hertu

Höfundur: Anna Sundbeck Klav

Þýðandi: Herdís Magnea Hübner

Lestur: Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir

Útgefandi: Storytel Original

Veðurteppt um jólin

Höfundur: Sarah Morgan
Þýðendur: Marta Hlín Magnadóttir, Birgitta Elín Hassel

Lestur: Sólveig Guðmundsdóttir
Útgefandi: Bókabeitan

Þessu lýkur hér

Höfundur: Colleen Hoover
Þýðendur: Marta Hlín Magnadóttir, Birgitta Elín Hassel

Lestur: Þrúður Vilhjálmsdóttir

Útgefandi: Bókabeitan

Örlagarætur

Höfundur: Anne Thorogood
Þýðandi: Ingibjörg Eyþórsdóttir
Lestur: Berglind Björk Jónasdóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir

Útgefandi: Storytel Original

Hljóðsería

Aha!

Höfundar: Sigyn Blöndal, Sævar Helgi Bragason

Lestur: Sigyn Blöndal, Sævar Helgi Bragason

Útgefandi: Storytel Original

Handritagildran: Bókaþjófurinn kjöldreginn

Höfundur: Friðgeir Einarsson

Lestur: Friðgeir Einarsson

Útgefandi: Storytel Original

Hundrað óhöpp Hemingways

Höfundur: Lilja Sigurðardóttir
Lestur: Birgitta Birgisdóttir, Kolbeinn Arnbjörnsson, Lilja Sigurðardóttir, Lára Sveinsdóttir, Sigríður Láretta Jónsdóttir, Örn Árnason, Þuríður Blær Jóhannsdóttir
Útgefandi: Storytel Original

Skerið

Höfundar: Ragnar Egilsson, Áslaug Torfadóttir
Lestur: Haraldur Ari Stefánsson, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Svandís Dóra Einarsdóttir
Útgefandi: Storytel Original

Sögustund með Afa

Höfundur: Örn Árnason

Lestur: Örn Árnason

Útgefandi: Storytel Original

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál