Sigþrúður Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Forlagsins

Sigþrúður Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Forlagsins. Hér er hún …
Sigþrúður Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Forlagsins. Hér er hún með móður sinni, Silju Aðalsteinsdóttur. mbl.is/Elsa Katrin Olafsdottir

Egill Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Forlagsins lét af störfum á dögunum. Það gerði líka eiginkona hans, Þórhildur Garðarsdóttir sem var fjármálastjóri fyrirtækisins. Nú hefur Sigþrúður Gunnarsdóttir verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Forlagsins. Hún er menntuð í íslensku og bókmenntum og hefur starfað hjá Forlaginu frá stofnun þess, og þar áður hjá Eddu og Máli og menningu. Hún hefur unnið náið með mörgum íslenskum höfundum og er önnur tveggja ritstjóra Tímarits Máls og menningar. Hún hefur einnig átt sæti í stjórn Forlagsins um nokkurra ára skeið.

„Við fögnum því mjög að ein okkar öflugasta samstarfskona hefur fallist á að taka að sér þá auknu ábyrgð sem felst í starfi framkvæmdastjóra. Sigþrúður hefur sýnt það í störfum sínum að hún hefur brennandi áhuga á framgangi íslenskra bókmennta og við erum sannfærð um að starfið muni farast henni vel úr hendi,“ segir Halldór Guðmundsson, stjórnarformaður Forlagsins, af þessu tilefni en Sigþrúður tekur til starfa þann 8. mars.

Nýr markaðsstjóri hefur verið ráðinn Jón Heiðar Gunnarsson. Hann tekur við af Guðrúnu Norðfjörð sem óskaði eftir því að láta af störfum. Jón Heiðar er menntaður í blaðamennsku og heimspeki en hefur einnig lært stafræna markaðssetningu og viðskipti á netinu. Undanfarin ár hefur hann starfað sem yfirmaður hjá auglýsingastofunni Sahara, þar sem Forlagið var meðal viðskiptavina hans, en þar áður hjá Birtingarhúsinu sem sérfræðingur. Hann hefur unnið að markaðsmálum fyrir fjöldamög fyrirtæki síðastliðinn áratug og má þar nefna vörumerki á borð við Byko, Nova, Elko og Krónuna. Hann hefur einnig starfað við fjölmiðla og sem atvinnumaður í handbolta, svo eitthvað sé nefnt. 

Þá hefur Stella Soffía Jóhannesdóttir verið ráðin til starfa hjá Forlaginu, en hún starfaði þar í sex ár áður en hún tók við starfi hjá Storytel á Íslandi. Stella er menntuð í bókmenntum og ritstjórn og hefur jafnframt verið framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík frá 2009 auk þess að taka þátt í verkefninu Sögueyjan, sem kynnti Ísland sem heiðursgest á bókasýningunni í Frankfurt. Stella mun ganga til liðs við þær sem fyrir eru á öflugri réttindastofu Forlagsins til að móta allsherjar umboðsskrifstofu fyrir íslenskar bókmenntir, sem erlendis verður kynnt undir heitinu Reykjavík Literary Agency. Stjórn Forlagins telur mikil tækifæri fólgin í réttindasölu, bæði á sviði bóka, kvikmynda og stafrænnar útgáfu, og er sannfærð um að reynsla Stellu og tengslanet komi þar að góðum notum. Stella hefur störf þann 1. maí.

Útgefandi Forlagsins er sem fyrr Hólmfríður Matthíasdóttir. Staða fjármálastjóra hefur verið auglýst og hefur Þórhildur Garðarsdóttir fallist á að gegna starfinu þar til nýr stjórnandi hefur verið ráðinn.
 

Jón Heiðar Gunnarsson, Sigþrúður Gunnarsdóttir og Stella Soffía Jóhannsdóttir.
Jón Heiðar Gunnarsson, Sigþrúður Gunnarsdóttir og Stella Soffía Jóhannsdóttir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál