Frosti Logason ásakar Eddu Falak um margvísleg brot

Frosti Logason sendir opið bréf til Heimildarinnar vegna Eddu Falak.
Frosti Logason sendir opið bréf til Heimildarinnar vegna Eddu Falak. Ljósmynd/Samsett

Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason, sem er meðlimur í Blaðamannafélagi Íslands, hefur skrifað opið bréf til fjölmiðilsins Heimildarinnar vegna starfa Eddu Falak á miðlinum. Hann segir að Edda hafi villt á sér heimildir og spyr hvort það sé í takt við siðareglur Heimildarinnar. 

Opið bréf til Heimildarinnar

„Í síðasta mánuði tilkynntuð þið á Heimildinni með formlegum hætti að hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak hefði hafið störf á ykkar miðli þar sem hún mun gegna því mikilvæga hlutverki að fjalla um margvíslegar birtingarmyndir ofbeldis og áhrif þess á þolendur og samfélagið allt.

Edda vakti fyrst athygli þegar hún steig fram sem þolandi kynbundins áreitis sem hún sagðist hafa orðið fyrir þegar hún lifði og hrærðist í viðskiptalífi Kaupmannahafnar fyrir nokkrum árum. Sagðist hún hafa legið undir ámælum og niðrandi athugasemdum frá samstarfsmönnum í stórum virtum banka, vegna nærfata og bikínimynda sem hún birti á samfélagsmiðlum á sama tíma og hún miðlaði með verðbréf í bankanum. Þá sagðist hún einnig hafa upplifað sömu framkomu þegar hún vann í fjármáladeild lyfjafyrirtækisins Novo Nordisk í sama landi á svipuðum tíma.

Edda segist hafa fengið skilaboð í vinnunni þess efnis að hún þyrfti að klæða sig öðruvísi ef hún ætlaði að láta taka sig alvarlega. Haft er eftir henni í viðtali á RÚV frá árinu 2021 að þarna hafði fokið í Eddu og hún mótmælt. Hún tjáði skoðanir sínar á þessu óréttlæti á Instagram og má segja að þannig hafi barátta hennar hafist.

Edda sagði frá þessum hremmingum sínum í fleiri viðtölum hjá fjölmiðlum á borð við mbl.is og vísir.is. Þetta gerði hún á sama tíma og hún ásamt öðrum hratt af stað herferð undir yfirskriftinni „Ég trúi“ sem miðaði að því að fá samfélagið til að samþykkja þá hugmynd að öllum konum skyldi alltaf trúað ef þær greindu frá kynbundnu áreiti eða ofbeldi. Því hver hefði annars hag af því að ljúga um slíkt? Jarðvegurinn var þá orðinn einkar frjór fyrir hlaðvarp hennar Eigin konur, þar sem rætt var einhliða við þolendur enda búið að planta rækilega þeirri hugmynd að konur hreinlega geti ekki sagt ósatt þegar kemur að slíkum málum.

Nú virðist þessi hugmynd vera komin í hnút því komið hefur í ljós að ein upphafskona „Ég trúi“ átaksins sem er Edda hefur ekki sagt satt og rétt frá varðandi starfsferil sinn í Kaupmannahöfn. Ég hef kannað það sjálfur og niðurstaðan er óyggjandi. Staðreyndin er einfaldlega sú að Edda Falak hefur aldrei starfað hjá stórum virtum banka, fjárfestingarbanka eða í fjármáladeild risa lyfjafyrirtækis. Það þýðir með öðrum orðum að hún varð aldrei fyrir því kynbundna áreiti sem hún hefur greint frá af fyrrnefndum vinnustöðum.

Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir „Ég trúi-átakið“? Hverju eigum við að trúa? Þetta hljóta að vera áleitnar spurningar sem margir velta fyrir sér.

Í ljósi alls þessa, er þá ekki vert að ábyrgðarmenn Heimildarinnar greini almenningi frá hver afstaða fréttamiðilsins er til þess að blaðamaður hans hefur farið á svig við sannleikann í viðtölum um eigin reynslu? Þegar þú lýgur að blaðamanni ertu að ljúga að allri þjóðinni og um leið að vega að trúverðugleika allra fjölmiðla. Það að félagi í Blaðamannafélagi Íslands geri sig sekan um slíkt eykur mjög á alvarleika slíks brots.

Er það síðan trúverðugt að blaðamaður sem staðinn hefur verið að þessum ósannindum sé að fjalla um málaflokk þennan með þeim hætti sem hún gerir? Telur Heimildin það rétt að manneskja sem sagt hefur ósatt um kynbundið áreiti í öllum stærstu fjölmiðlum landsins gegni þessu hlutverki á fréttamiðli sem vill láta taka sig alvarlega? Eða teljið þið þetta jafnvel engu máli skipta?

Sjálfur tel ég að lesendur ykkar og aðrir eigi rétt á svörum við þessum spurningum.

Virðingarfyllst,

Frosti Logason

Höfundur er hlaðvarpsstjóri og félagi í Blaðamannafélagi Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál