Alexandra Helga mætt aftur á Instagram

Alexandra Helga Ívarsdóttir og Gylfi Þór Sigurðsson gengu í hjónaband …
Alexandra Helga Ívarsdóttir og Gylfi Þór Sigurðsson gengu í hjónaband á Ítalíu 2019.

Alexandra Helga Ívarsdóttir, einkaþjálfari og eigandi fyrirtækisins Móa&Mía ehf., hætti á félagsmiðlinum Instagram þegar eiginmaður hennar, Gylfi Þór Sigurðsson, fótboltamaður var sakaður um kynferðisbrot í Bretlandi fyrir um tveimur árum. Eftir að í ljós kom að hann yrði ekki ákærður og máli hans vísað frá opnaði Alexandra Helga Instagram-reikning sinn aftur. 

Alexandra Helga rekur verslunina Móa&Mía ásamt Móeiði Lárusdóttur. 

„Það hefur verið draumur hjá okkur vinkonunum í nokkur ár að opna saman barnabúð. Við höfum alla tíð haft áhuga á tísku og hönnun og þegar við eignuðumst stelpurnar okkar Matteu Móu og Melrós Míu með árs millibili fórum við mikið að spá í barnavörum. Við höfum báðar búið erlendis um árabil og kynnst ýmsum barnavörumerkjum sem okkur langaði að kynna á Íslandi. Öll vörumerkin eru vandlega valin með gæði og þægindi í fyrirrúmi fyrir bæði börn og foreldra. 

Nú er draumurinn orðinn að veruleika og við erum ótrúlega þakklátar fyrir frábærar viðtökur. Vonum við að þið elskið vörurnar jafn mikið og við! 

Hlökkum til að bæta við stækkandi vöruúrval hjá okkur næstu vikur og mánuði og hvetjum ykkur til að fylgjast vel með,“ segja Alexandra Helga og Móeiður á heimasíðu verslunarinnar. 

Móeiður Lárusdóttir og Alexandra Helga Ívarsdóttir
Móeiður Lárusdóttir og Alexandra Helga Ívarsdóttir Ljósmynd/moaogmia.is
mbl.is
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Valgeir Magnússon
Valgeir Magnússon
Ásdís Ósk Valsdóttir
Ásdís Ósk Valsdóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
Árelía Eydís Guðmundsdóttir

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

félags- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

svarar spurningum um lögfræðileg mál