Erfitt að bera saman rekkjuburði Pitt og Affleck

Gwyneth Paltrow átti erfitt með að gera upp á milli …
Gwyneth Paltrow átti erfitt með að gera upp á milli Brad Pitt og Ben Affleck. AFP

Leikkonan Gwyneth Paltrow segir að erfitt sé að meta hvort Brad Pitt eða Ben Affleck hafi verið betri rekkjunautur, því ótrúlegir straumar hafi verið á milli hennar og Pitt en Affleck hafi verið tæknilega frábær.

Þetta segir hún í hlaðvarpsþættinum Call Her Daddy, sem kom út á dögunum, er hún var spurð hvort þeirra væri betri í rúminu. Auk þess sagði hún að Affleck hafi komið henni oftar til að hlæja en Pitt hafi verið mun rómantískari.

Nokkuð langt er þó síðan Paltrow var í sambandi með þeim félögum. Hún og Pitt voru saman á árunum 1994 til 1997 en hún og Affleck á árunum 1997 til 2000. Nú er hún gift framleiðandanum og handritshöfundinum Brad Falchuk, en þess á milli var hún gift Coldplay-söngvaranum Chris Martin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál