Ómar fluttur og kominn með kærustu

Ómar R. Valdimarsson er kominn með kærustu upp á arminn.
Ómar R. Valdimarsson er kominn með kærustu upp á arminn. Ljósmynd/Aðsend

Ómar R. Valdimarsson, lögmaður á lögmannsstofunni Valdimarsson, er kominn með kærustu. Sú lukkulega heitir Eva Margrét Ásmundsdóttir og er fasteignasali hjá Croisette.

DV greindi frá því að parið væri að hittast og hefði farið saman á árshátíð Valdimarsson sem haldin var í Berlín á dögunum. 

Ómar var áður kvæntur Margréti Ýr Valdimarsdóttur kennara og eiganda Hugmyndabankans. Þau bjuggu í fallegu húsi í Garðabænum sem var sett á sölu í kjölfar skilnaðarins. 

Ómar R. Valdimarsson og Eva Margrét Ásmundsdóttir eru nýtt par.
Ómar R. Valdimarsson og Eva Margrét Ásmundsdóttir eru nýtt par. Ljósmynd/Instagram
Ómar festi kaup á íbúð í húsi við Laufás 3 …
Ómar festi kaup á íbúð í húsi við Laufás 3 í Garðabæ.

Keypti 83,5 milljóna íbúð 

Eftir skilnaðinn festi Ómar kaup á íbúð við Laufás 3 í Garðabæ og greiddi fyrir hana 83.500.000 kr. Hann er skráður 90% eigandi íbúðarinnar á móti 10% hlut Esja Legal ehf. sem er félagið sem rekur Valdimarsson lögmenn. Íbúðin er 144,1 fm að stærð og var húsið reist 1962. 

Í kjölfarið hefur Ómar breytt ýmsu í sínu lífi en á dögunum auglýsti hann forlátan Eames-stól til sölu vegna plássleysis. 

Hér má sjá eldhúsið í íbúð Ómars eftir að það …
Hér má sjá eldhúsið í íbúð Ómars eftir að það var tekið í gegn.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda