Það var nóg um að vera á Instagram í liðinni viku. Tónlistarkonan Laufey var smekkleg að vanda í tískuborginni París, Brynhildur Gunnlaugsdóttir sýndi kroppinn á sundlaugarbakka og Selma Björnsdóttir, söngkona, deildi mynd af sér í litlu pallíettudressi.
World Class-mæðgurnar Birgitta Líf og Hafdís klæddu sig upp í glitrandi síðkjóla fyrir árshátíð fyrirtækisins.
Tónlistarkonan Laufey Lín Bing Jónsdóttir naut sín í París.
Samfélagsmiðlastjarnan Brynhildur Gunnlaugsdóttir veit fátt skemmtilegra en að sitja við sundlaugarbakkann.
Bubbi Morthens og sonur hans, Brynjar Úlfur Morthens, skelltu í sjálfu.
Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og markaðsstjóri World Class, var stórglæsileg á árshátíð World Class sem haldin var í Hörpunni nú á dögunum.
Samfélagsmiðlastjarnan Jóhanna Helga Jónsdóttir gaf fylgjendum sínum innsýn í vinkonuferð til Lundúna.
Söng- og leikkonan Selma Björnsdóttir flutti ABBA-lögin í glitrandi fatasetti.
Camilla Rut Rúnarsdóttir, áhrifavaldur og eigandi Camy Collections, stillti sér upp fyrir myndatökuna.
Hafdís Jónsdóttir eða Dísa í World Class eins og hún er kölluð brá sér í betri fötin til að fagna árshátíð World Class.
Helga Margrét Agnarsdóttir kíkti í bæinn.
Hlaðvarpsstjarnan Birta Líf Ólafsdóttir svífur um á bleiki skýi þessa dagana.
Fanney Ingvarsdóttir, markaðsfulltrúi BIOEFFECT og áhrifavaldur, og eiginmaður hennar Teitur Páll Reynisson eiga von á þriðja barninu. Fyrir eiga þau sjö ára dóttur og fjögurra ára son. Fanney deildi hjartnæmu myndskeiði á Instagram og tilkynnti um gleðitíðindin.
Fjölmiðlakonan Ása Ninna Pétursdóttir varði helginni í pollabuxunum ásamt eiginmanni sínum. Þarna var verið að moka drullu og ýmislegt annað skemmtilegt en það var alltaf tími fyrir koss.
Söngkonan Bríet deildi nokkrum smekklegum myndum af síðustu dögum þar sem hún var að gera sig til fyrir viðburð.