Heiðdís Rós fagnaði deginum með heimsókn frá Íslandi

Heiðdís Rós birti þó nokkrar myndir og frá deginum á …
Heiðdís Rós birti þó nokkrar myndir og frá deginum á Instagram. Samsett mynd

Heiðdís Rós Reynisdóttir, athafnakona og förðunarfræðingur, lifir sannkölluðu glamúrlífi í Bandaríkjunum og er afar dugleg að gefa fylgjendum sínum, sem telja ríflega 13 þúsund manns, innsýn í það á Instagram.

Hún birtir reglulega myndir af sér í glæsilegum kjólum á hinum ýmsu viðburðum og sýndi meðal annars frá því þegar hún fagnaði kjöri Donalds Trumps til forseta í nóvember.

Heiðdís Rós fagnaði 37 ára afmæli sínu nú á dögunum, en athafnakonan varð árinu eldri þann 23. mars síðastliðinn og fékk sérstaka heimsókn í tilefni dagsins.

Foreldrar hennar, Reynir Einarsson og Jakobína Laufey Jensdóttir, flugu til Bandaríkjanna til að fagna með dóttur sinni og gaf Heiðdís Rós þeim smjörþefinn af lúxuslífi sínu þar í landi, en fjölskyldan eyddi meðal annars sólríkum degi á Florida Derby og skemmti sér vel.

Heiðdís Rós hefur sýnt frá heimsókn þeirra á Instagram og ef marka má færslur hennar þá virðist fara ansi vel um þau í sólinni í Flórída.

S­martland send­ir af­mæl­is­barn­inu síðbún­ar af­mæliskveðjur!



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda