Alma Goodman og Ed Weeks hnutu hvort um annað á stefnumótaappi í upphafi kórónuveirufaraldursins. Þremur árum síðar giftu þau sig í litlum bæ á Spáni en staðurinn varð fyrir valinu svo vinir og fjölskylda ættu auðveldara með að fagna ástinni með þeim.
Alma Goodman varð heimsfræg á Íslandi þegar hún byrjaði í stúlknahljómsveitinni Nylon vorið 2004. Hljómsveitin vakti mikla athygli en frægðin leiddi Ölmu til Los Angeles þar sem hún hefur búið í meira en einn og hálfan áratug. Í dag er hún lagahöfundur í sjálfri Hollywood en hjónin búa í Silverlake sem er hverfi í Los Angeles ásamt hundinum sínum, honum Arthur.
„Ég vinn sem lagahöfundur, Ed leikari og handritshöfundur og þegar við erum ekki föst í öðrum verkefnum vinnum við saman að tónlist og skrifum. Ég samdi lag með Alesso og Becky Hill sem kom út nýlega og heitir Surrender og Ed er að leika í bíómyndinni DROP sem var að koma út og allir ættu að skella sér í bíó að sjá. Lífið er mjög gott og við vonumst til að fjölskyldan fari stækkandi fyrr en síðar,“ segir Alma sem giftist ástinni í september 2023.
Hvar kynntust þið og hvað eruð þið búin að vera lengi saman?
„Við kynntumst fyrst á Raya dating-appinu í byrjun kórónuveirunnar. Það var auðvitað mjög óvenjulegur tími og mjög takmarkað hvað var opið annað en matvöruverslanir. Fyrsta stefnumótið okkar var á veitingastað í West Hollywood þar sem öll borð voru úti og 90 mínútna tímatakmörk á öllum borðum. Starfsfólkið hlýtur að hafa séð hvað það var gaman hjá okkur því þau leyfðu okkur að sitja þangað til staðnum var lokað,“ segir hún.
Hvað var það við hann sem heillaði þig?
„Það var strax augljóst hvað við áttum margt sameiginlegt. Þótt Ed sé leikari og handritshöfundur er hann líka mikill tónlistarmaður, spilar á mörg hljóðfæri og pródúserar. Við náðum strax saman í gegnum tónlistaráhugann, ást á mat og ferðalögum og reynsluna af að flytja frá heimalöndum okkar og festa rætur í LA, en Ed er breskur. Svo skemmdi ekki fyrir hvað hann er myndarlegur, fyndinn og góðhjartaður,“ segir hún.
Hvernig var bónorðið?
„Hann bað mín á Suður-Spáni þar sem foreldrar hans búa. Ég hafði ekki hugmynd um að það stæði til því mamma hans átti afmæli og ég hélt því að við værum á leiðinni á veitingastað við ströndina af því tilefni. Þegar hann dró fram hringinn og var á leiðinni niður á annað hné fékk hann krampa í fótinn svo það var bæði fyndið og rómantískt augnablik þegar ég var að átta mig á hvað var í gangi og hann að jafna sig á krampanum til að biðja mín,“ segir Alma og játar að hún hafi aldrei verið í vafa um að hann væri sá rétti.
„Ég var aldrei í vafa. Hann er yndislegur maki og að giftast honum er besta ákvörðun sem ég hef tekið,“ segir hún.
Alma og Ed gengu í hjónaband í smábænum San Pedro Del Pinatar á Spáni 9. september 2023.
„Við völdum þann stað því við vildum bæði strandarbrúðkaup og fjarlægðin var hentug fyrir fjölskyldu og vini í Evrópu,“ segir hún.
Hvernig skipulögðuð þið stóra daginn?
„Eleonora tengdamóðir mín býr í San Pedro og var algjör lykilkona í öllu skipulaginu. Hún hjálpaði okkur að finna sjálfan brúðkaupsstaðinn og staðinn fyrir kvöldið á undan. Við hefðum ekki getað þetta án hennar hjálpar þar sem við búum í Los Angeles. Það var nauðsynlegt að hafa einhvern spænskumælandi á staðnum til að passa að allt gengi upp. Ég eyddi svo miklum tíma á netinu til að finna ljósmyndara, blómaskreytingar og brúðkaupstertu,“ segir hún.
Var þetta stór veisla?
„Þetta var 100 manna veisla, sem var akkúrat sá fjöldi sem staðurinn gat tekið.“
Hverju klæddist þú á brúðkaupsdaginn?
„Ég var í kjól frá Evie Young,“ segir Alma en merkið er þekkt fyrir framúrskarandi vel sniðna og smart brúðarkjóla.
Fannst þér erfitt að finna kjól?
„Ég hélt að það yrði mjög erfitt og var búin að mikla það fyrir mér. Ég var búin að skoða mikið á Pinterest og safna hugmyndum svo ég vissi að ég vildi einhverskonar rómantískan „boho chic“-kjól sem myndi passa fyrir strandarbrúðkaup. Þegar ég fór í mátun og sýndi þeim hvað ég hafði í huga gáfu þau mér nokkra kjóla og sá allra fyrsti sem ég mátaði var kjóllinn sem ég valdi.“
Hvað stendur upp úr frá stóra deginum?
„Að fá að fagna ástinni með nánustu fjölskyldu og vinum, öllum saman komnum á einum stað í yndislegu veðri, var algjörlega ógleymanlegt. Þegar maður býr svona langt í burtu er takmarkað hvað maður sér fólkið sitt oft svo við vorum óendanlega þakklát hvað margir ferðuðust til að fagna með okkur.“