Jóhanna Helga trúlofuð

Jóhanna Helga Jensdóttir og Geir Ulrich Skaftason trúlofuðu sig í …
Jóhanna Helga Jensdóttir og Geir Ulrich Skaftason trúlofuðu sig í París. Samsett mynd

Samfélagsmiðlastjarnan Jóhanna Helga Jensdóttir og Geir Ulrich Skaftason, viðskiptastjóri hjá Isavia, eru trúlofuð. Parið trúlofaði sig í París á föstudag.

Jóhanna Helga greindi frá trúlofuninni í færslu á Instagram-síðu sinni í gærdag. Þar skrifar hún einfaldlega „02.05.25.“ og lætur lyndistákn þess efnis að um trúlofun sé að ræða fylgja með.

Jóhanna Helga og Geir hafa verið saman um árabil og eiga tvö börn, stúlku og dreng.

Aðeins örfáar vikur eru frá því að besta vinkona Jóhönnu Helgu, samfélagsmiðlastjarnan Sunneva Eir Einarsdóttir, trúlofaðist Benedikt Bjarnasyni í Mexíkó og er því nokkuð líklegt að stöllurnar eigi eftir að skipuleggja brúðkaupin saman.

Smart­land ósk­ar þeim til ham­ingju með trú­lof­un­ina!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda