Andrea og Arnór fengu boð í höllina

Arnór Ingvi Traustason og Andrea Röfn Jónasdóttir.
Arnór Ingvi Traustason og Andrea Röfn Jónasdóttir.

Andrea Röfn Jónasdóttir athafnakona og eiginmaður hennar Arnór Ingvi Traustason knattspyrnumaður fengu boð í formlegan kvöldverð hjá sænsku konungshöllinni. Kvöldverðurinn var haldinn vegna heimsóknar Höllu Tómasdóttur forseta Íslands og eiginmanns hennar Björns Skúlasonar.

Klæðaburður Andreu og Arnórs var hinn glæsilegasti. Andrea var klædd í síðan, ljósan silkisatínkjól, hárið var greitt aftur og hvítir eyrnalokkar stóðu út úr. 

Arnór var klæddur í svört kjólföt, hvíta plíseraða skyrtu, hvíta silkislaufu og svarta lakkskó.

Hjónin eru búsett í Norrköping í Svíþjóð þar sem hann spilar fótbolta.

Andrea deildi mynd af þeim fyrir utan höllina á Instagram. 

„Mikill heiður að fá boð í konunglegan galakvöldverð í sænsku konungshöllinni í tilefni af opinberri heimsókn forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, til Svíþjóðar,“ skrifaði hún. 

View this post on Instagram

A post shared by Andrea Röfn (@andrearofn)

 https://www.mbl.is/smartland/tiska/2025/05/06/halla_klaeddist_ljosri_pilsdragt_i_svithjod/

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda