Gagnafræðingurinn Guðmundur Smári Þorvaldsson og Anna Guðný Ingvarsdóttir flugfreyja eru nýtt og glæsilegt par.
Guðmundur hefur búið síðastliðin fjögur ár í London þar sem hann lærði Data Science við Queen Mary-háskólann, en hann er nú nýfluttur aftur heim til Íslands.
Anna Guðný starfar sem flugfreyja hjá Icelandair og er systir Fanneyjar Ingvarsdóttur, áhrifavaldar og markaðsstjóra BioEffect. Systurnar eiga það sameiginlegt að hafa einstaklega fallegt rautt hár og eru báðar með frábært lag á að taka fallegar myndir.
Anna birti nýlega fallega mynd af parinu á Instagram-síðu sinni og ljóst er að ástin blómstrar hjá þeim.
Smartland óskar parinu hjartanlega til hamingju með ástina!