Það var heldur betur nóg um að vera á Instagram í liðinni viku.
Fólk brá sér í betri fötin og skálaði, skellti sér út fyrir landsteinana og svalmaði í ylvolgum sjónum og rifjaði upp sólríka sumardaga.
Ljósmyndarinn og samfélagsmiðlastjarnan Ína María Einarsdóttir kældi sig niður með ískaffi.
Júlíana Sara Gunnarsdóttir, leikkona og handritshöfundur, fagnaði 35 ára afmæli sínu um helgina.
Það fór heldur betur vel um Sunnevu Eiri Einarsdóttur á Spáni.
Dóra Júlía Agnarsdóttir, plötusnúður og blaðamaður, og eiginkona hennar, Bára Guðmundsdóttir, nutu sín í Kanada.
Patrekur Jaime, raunveruleikastjarna og áhrifavaldur, brá sér í betri fötin og kíkti út á lífið.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði sér lítið fyrir og vann ræðukeppni í áfanga í Columbia-háskóla nú á dögunum.
Samfélagsmiðla- og raunveruleikastjarnan Magnea Björg Jónsdóttir naut góðra sumardaga til hins ýtrasta.
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson ferðaðist um landið ásamt eiginkonu sinni, Hafdísi Björk Jónsdóttur tannlækni, börnum þeirra og hundi.
Kolbrún Pálína Helgadóttir, markaðssérfræðingur og jógakennari, skellti í sæta sjálfu.
Leikkonan Þuríður Blær Jóhannsdóttir gaf innsýn í lífið í Prag.
Ásdís Rán Gunnarsdóttir, athafnakona og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, birti sólríka sjálfu í tilefni af afmælinu sínu.
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir er alltaf töff í tauinu.
Katrín Tanja Davíðsdóttir, tvöfaldur heimsmeistari í Crossfit, og unnusti hennar, fyrrverandi NHL-leikmaðurinn Brooks Laich, kunna að njóta lífsins.
Útvarpskonan og áhrifavaldurinn Guðrún Svava Egilsdóttir, betur þekkt sem Gugga í Gúmmíbát, hélt upp á 22 ára afmæli sitt með stæl.
Hafdís Björg Kristjánsdóttir, einkaþjálfari og samfélagsmiðlastjarna, hatar ekki sólina.
Leikarinn, dansarinn og fyrrverandi fótboltamaðurinn Rúrik Gíslason kíkti til Mallorca ásamt fjölskyldu sinni.