Móðir hinnar tíu ára gömlu Thylane Lena-Rose Blondeau hefur loksins tjáð sig um þá miklu gagnrýni sem að myndirnar af dóttur hennar hafa fengið.
Myndirnar, sem birtust í franska Vogue fyrir átta mánuðum síðar, hafa verið mikið gagnrýndar út af ungum aldri fyrirsætunnar. Hafa menn bent á hversu einkennilegt það sé að klæða svo unga stúlku eins og fullorðin sé og stífmála.
Móðir Blondeau, Veronika Loubry sendi frá sér yfirlýsingu á Facebook þar sem hún tilkynnti að hún hygðist loka síðunni almenningi til að vernda dóttur sína. Sagði hún að Blondeau hefði enga hugmynd um þá miklu úlfhúð sem væri vegna myndanna og vildi helst halda því þannig. Af þeim sökum hygðist hún loka síðunni og óskaði öllum aðdáendum dótturinnar velfarnaðar í lífinu.