„Myndi aldrei fara í hermannaföt“

Hulda Vigdísardóttir
Hulda Vigdísardóttir Rósa Braga

Hulda Vigdísardóttir er 19 ára stelpa úr miðbænum sem elskar ljósmyndun og ferðalög. Hulda lauk nýverið námi við Menntaskólann í Reykjavík og ætlar á interrail-ferðalag með frænku sinni í sumar.

Getur þú lýst þínum fatastíl? Fatastíllinn minn breytist dag frá degi eftir því hvernig skapi ég er í. Ég er oftast í buxum og í skyrtu eða peysu við dagsdaglega en ég elska að fara í kjóla við réttu tækifærin. Ég er mjög hrifin af jarðlitum og á mikið af fötum í slíkum litum.

Fyrir hverju fellur þú yfirleitt fyrir? Ég fell mjög oft fyrir blúndum, ljósum og hekluðum peysum og köflóttum skyrtum. Ég kaupi mér oftast kjóla eða fína boli og skyrtur. 

Hvað er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum sínum? Mér finnst nauðsynlegt að eiga einhvern látlausan bol sem gengur með öllu.

Hvaða mistök gera konur í klæðaburði? Ég tel að margar konur og stelpur geri þai mistök að vera feimnar við að prófa nýja hluti.

Hvað dreymir þig um að eignast? Endalaust af geggjuðum skóm!

Hver er dýrasta flíkin í fataskápnum þínum? Dýrasta flíkin mín er sennilega árshátíðarkjóll sem ég eignaðist fyrir tveim árum eða nýju stúdentsskórnir. Hvorugt er samt brjálæðislega dýrt.

Hvað vantar í fataskápinn þinn? Flottan og sumarlegan jakka. Mig langar líka sjúklega mikið í sítt pils sem nær alveg niður á ökkla og er hátt í mittið. Svo langar mig líka í skemmtilegar buxur. Ég er alltaf að skoða Nasty Gal vefverslunina og láta mig dreyma.

Hver er best klædda kona í heimi? Vá, ég veit það ekki, þær eru svo margar.

Í hvað myndir þú aldrei fara? Ég tel að það sé hægt að gera flesta hluti flotta. Ég myndi samt aldrei fara í hermannaföt.

Eru einhver tískuslys í fataskápnum þínum? Já, alveg fullt! Ég er ekki mikið fyrir að henda hlutum og vil helst geyma allt þannig það er fullt af slysum í fataskápnum mínum.

Hvað finnst þér mest heillandi í vor-og sumartískunni? Ég elska litina í ár! Stúdentskjóllinn minn er einmitt ljósgrænn og mér finnst hann mjög fallegur. Bjartir og hreinir litir heilla mig mikið.

Ef þú myndir vinna milljón í Happdrætti DAS, hvað myndir þú kaupa þér? Ég myndi alveg örugglega fara í skemmtilegt ferðalag á framandi slóðir. Þar myndi ég svo kannski kaupa mér eitthvað fallegt í fataskápinn.

Hulda Vigdísardóttir
Hulda Vigdísardóttir Rósa Braga
Hulda Vigdísardóttir elskar að versla sér gömul föt
Hulda Vigdísardóttir elskar að versla sér gömul föt Rósa Braga
Hulda Vigdísardóttir
Hulda Vigdísardóttir Rósa Braga
Hulda Vigdísardóttir
Hulda Vigdísardóttir Rósa Braga
Hulda Vigdísardóttir
Hulda Vigdísardóttir Rósa Braga
Ilmvatnssafnið
Ilmvatnssafnið Rósa Braga
Hulda raðar töskunum upp á skipilagðan hátt
Hulda raðar töskunum upp á skipilagðan hátt Rósa Braga
Fataskápurinn
Fataskápurinn Rósa Braga
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál