Langar í sjúklega fínt leðurveski

Peysan er
Peysan er "vintage" Rósa Braga

Fatahönnuðurinn Helga Lilja er eigandi fatamerkisins Helicopter sem fæst meðal annars í versluninni Kiosk. Helga kveðst hafa litríkan fatastíl en hún er hrifnust af hvíta litnum þessa dagana.

Getur þú lýst þínum fatastíl? Afslappaður og oft á tíðum frekar litríkur. Ég á það til að festast í sömu þremur samsetningunum og sjá ekki neitt annað inni í skápnum mínum. 

Fyrir hverju fellur þú yfirleitt fyrir? Grængulum peysum.

Hvað er nauðsynlegt að eiga í fataskápnum sínum? Góðan grunn. Svartar þröngar gallabuxur, hinn fullkomna stuttermabol og svo fullt af munstruðum flíkum til að lífga upp á tilveruna. 

Hvaða mistök gera konur í klæðaburði? Að loka augunum fyrir kostum sínum og einblína aðeins á gallana, með því hugarfari gleymist að ýta undir kvenleikann.

Hvað dreymir þig um að eignast? Nýtt og sjúklega fínt seðlaveski.

Hver er dýrasta flíkin í fataskápnum þínum? Geðveiki leðurkjóllinn frá Helicopter sem kemur í haust ... en hann er svo þess virði!

Hvað vantar í fataskápinn þinn? Fullkomnar svartar gallabuxur. 

Hver er best klædda kona í heimi? Það er ekki til nein ein best klædda kona í heimi að mínu mati. En mér finnst Taylor Tomasi Hill alltaf mjög flott í tauinu. 

Í hvað myndir þú aldrei fara? Táslusokka!

Eru einhver tískuslys í fataskápnum þínum? Ég grisja hann svo reglulega þannig að ég ætla rétt að vona ekki!

Hvað finnst þér mest heillandi í vor-og sumartískunni? Hvítur litur.

Ef þú myndir vinna milljón í Happdrætti DAS, hvað myndir þú kaupa þér? Sjúklega fínt nýtt leðurveski og óeðlilegt magn af parmesan ost.

Glæsilegur munstraður kjóll frá Helicopter
Glæsilegur munstraður kjóll frá Helicopter Rósa Braga
Toppur frá Millu Snorrason og
Toppur frá Millu Snorrason og "vintage" peysa. Rósa Braga
Kjóll frá Helicopter
Kjóll frá Helicopter Rósa Braga
Kjóll frá REY og belti eftir Áróru
Kjóll frá REY og belti eftir Áróru Rósa Braga
Skórnir eru úr Office í London
Skórnir eru úr Office í London Rósa Braga
Fiona Cribben armband
Fiona Cribben armband Rósa Braga
Sólgleraugun eru
Sólgleraugun eru "vintage" frá Targa Rósa Braga
Martin Margiela fyrir H&M
Martin Margiela fyrir H&M Rósa Braga
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál