Það verður að viðurkennast að leikkonan Renee Zellweger er nánast óþekkjanleg á nýlegum myndum en hún hefur látið breyta andliti sínu töluvert með fegrunaraðgerðum.
Það sem vekur mesta athygli er að hún hefur farið í aðgerð á augnlokum þannig að augnsvipur hennar hefur breyst mikið. Eftir aðgerðina er Zellweger gjörbreytt.
Blaðamaður MailOnline vakti fyrst athygli á þessum miklu breytingum og tók fram að húð hennar væri óeðlilega slétt og augnsvipurinn öðruvísi en áður fyrr.
Hin 41 árs Zellweger virðist hafa gengist undir aðgerð á augnloki, farið í andlitslyftingu og fengið sér fyllingarefni svo eitthvað sé nefnt en hún hefur þó aldrei viðurkennt að hafa farið í lýtaaðgerð.
Svona leit leikkonan út þegar hún lék í myndunum um Bridget Jones.