Melania Trump hefur verið ljósmynduð í bak og fyrir síðan hún og Donald Trump byrjuðu að stinga saman nefjum. Melania hefur ávallt vakið athygli fyrir útlit og fatastíl sinn en á meðfylgjandi myndum má sjá hvernig stíll hennar hefur þróast á undanförum árum.
Ef Donald Trump verður næsti forseti Bandaríkjanna þá er Melania a.m.k. með stílinn á hreinu því hún hefur yfirleitt alltaf klætt sig eins og forsetafrú, hvort sem það telst vera jákvætt eða neikvætt.