Melania Trump í flatbotna skóm

mbl.is/AFP

Forsetahjón Bandaríkjanna, Donald og Melania Trump, mættu í sína fyrstu heimsókn til Palm Beach í Flórída á föstudaginn. Frú Trump var glæsileg til fara í rauðum síðerma kjól frá Givenchy en í stað þess að klæðast himinháum hælum, líkt og hún gerir oftar en ekki, var hún í flatbotna skóm. 

Skórnir eru þó ekkert frá Crocs eða einhverju slíku heldur eru þeir frá einum frægasta skóhönnuði heims, Manolo Blahnik. Þær sem horfðu á Beðmál í borginni á sínum tíma muna líklega eftir ást Carrie Bradshaw á slíkum skóm. 

Við rauða kjólinn var frú Trump með rauða klassíska Chanel-tösku. Slík taska kostar í kringum 500 þúsund krónur og svo var hún með GUCCI-sólgleraugu. 

Donald og Melania Trump í sinni fyrstu heimsókn til Palm …
Donald og Melania Trump í sinni fyrstu heimsókn til Palm Beach. Hún var í flatbotna skóm þegar hún steig út úr vélinni. mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál