Sækir innblástur til Jackie Kennedy

Melania Trump hefur tekið sér Jackie Kennedy til fyrirmyndar.
Melania Trump hefur tekið sér Jackie Kennedy til fyrirmyndar. Skjáskot / Cosmopolitan

Fatastíll Melaniu Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, hefur verið mikið í umræðunni undanfarið og þykir hún jafnan vera afar smekklega klædd.

Það þarf kannski ekki að undra, enda hefur hún sótt innblástur til tískufyrirmyndarinnar Jackie Kennedy sem þótti jafnan vera óaðfinnanleg til fara.

Á innsetningarathöfn Donald Trumps klæddist Melania bláum kjól og kápu, og minnti klæðnaðurinn á dress sem Kennedy skartaði á sínum tíma.

Á dögunum endurtók forsetafrúin svo leikinn þegar hún hitti japanska forsætisráðherrann Shinzo Abe. Melania klæddist svartri blússu og hvítum buxum í víðari kantinum, en dressið er ansi líkt klæðnaði sem Kennedy skartaði í opinberri heimsókn árið 1973 eins og fram kemur í frétt Cosmopolitan.

Mörgum þykir klæðnaðurinn ansi keimlíkur.
Mörgum þykir klæðnaðurinn ansi keimlíkur. Skjáskot / Cosmopolitan
Hér sést Melania við hlið eiginmanns síns, á innsetningarathöfn hans.
Hér sést Melania við hlið eiginmanns síns, á innsetningarathöfn hans. AFP
Melania Trump leit glæsilega út í dressinu, hvort sem hún …
Melania Trump leit glæsilega út í dressinu, hvort sem hún sótti innblástur til Kennedy eða ekki. AFP
Hér má sjá Kennedy spranga um í dressinu, en myndin …
Hér má sjá Kennedy spranga um í dressinu, en myndin var tekin árið 1973. Skjáskot / Cosmopolitan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál