Fáðu hár eins og Melania Trump

Melania Trump fer ekki út úr húsi nema vera mað …
Melania Trump fer ekki út úr húsi nema vera mað vel blásið hár sem er krullað í endana. mbl.is/AFP

Forsetafrú Bandaríkjanna hefur ekki sést opinberlega nema hárið sé blásið og örlítið liðað í endunum. Hárið er með góðri lyftingu og þétt og gott í sér. Tískublaðið fékk Baldur Rafn Gylfason hárgreiðslumeistara til að rýna í hárið á frú Trump. 

„Til þess að ná svona fallegu útliti á hári er ekki bara nóg að nota gott krullujárn þótt það geri mikið gagn. Það þarf númer eitt, tvö og þrjú að hugsa vel um hárið,“ segir Baldur. Þá er hann ekki að tala um að þvo hárið og setja í það hárnæringu. Hann segir að það sé mjög mikilvægt að nota rétt efni í hárið áður en það er blásið og krullað.

„Til þess að fá hár eins og Melania Trump skiptir máli að notar rótarfroðu. Ég mæli til dæmis með Volume Mousse frá label.m. Það gefur fyllingu þannig að hárið verður miklu þéttara. Þar á eftir myndi ég úða Blow Out-úða í hárið á meðan það er blautt. Það fær hárið til að hlýða,“ segir Baldur.

Hann segir að best sé að blása hárið vel og þegar búið er að setja þessi tvö efni í hárið þá verði hárið eins og á frú Trump, mjúkt og fallegt. Baldur mælir með því að nota ROD VS7-krullujárnið frá HH Simonsen. Það er stærsta krullujárnið frá fyrirtækinu og gerir stóra liði.

„Þetta járn gerir stóra, mjúka og jafna liði. Aftur á móti, ef konur vilja hafa ennþá kraftmeiri liði í hárinu þá myndi ég setja hársprey í hvern lokk áður en það er krullað með járninu,“ segir Baldur.

Baldur ítrekar það að undirlagið skipti máli ef greiðslan á að haldast og bendir á að ef hárið er blásið án þess að í það séu notuð rétt efni þá leki allt úr hárinu.

„Með því að fylgja þessum leiðbeiningum á greiðslan að haldast í sex til átta tíma. Ef konur setja bara hársprey í hvern lokk og undirbúa ekki hárið á undan þá lekur allt úr. Og til þess að fullkomna útlitið á hárinu er gott að setja örlitla olíu í endann til þess að liðirnir verði fallegir,“ segir hann.

Blow Out Spray frá label.m er ómissandi.
Blow Out Spray frá label.m er ómissandi.
Volume Mousse frá label.m nærir hárið vel og undirbýr það …
Volume Mousse frá label.m nærir hárið vel og undirbýr það fyrir blástur og krullujárn.
Krullujárnið Rod VS/ frá HH Simonsen.
Krullujárnið Rod VS/ frá HH Simonsen.
Melania Trump.
Melania Trump. mbl.is/AFP
Melania Trump og Donald Trump.
Melania Trump og Donald Trump. mbl.is/AFP
Melania Trump.
Melania Trump. mbl.is/AFP
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál