Þarf að svæfa í fitusogi?

Hér er Þórdís spurð að því hvort fólk þurfi að …
Hér er Þórdís spurð að því hvort fólk þurfi að láta svæfa sig þegar það fari í fitusog. mbl.is/ThinkstockPhotos

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Dea Medica svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér er hún spurð út í fitusog. 

Sæl Þórdís, 

ég er mikið að velta fitusogi fyrir mér. Verður maður að fara í svæfingu ef maður fer í fitusog á maga? 

Kær kveðja, 

ein sem vill losna við fituna

Sælar og takk fyrir spurninguna.

Til þess að árangurinn verði sem bestur, þá er best að gera fitusogið á maga í svæfingu. Það er einungis ef um lítið svæði er að ræða (t.d. undirhaka) að hægt er að framkvæma það í deyfingu. Ef reynt er að gera stærri svæði í deyfingu er hætta á að deyfingin virki ekki eins vel á allt svæðið og sjúklingurinn finni þá fyrir sársauka við aðgerðina.  Aðgerðarlæknirinn getur þá ekki fjarlægt fituna eins vel og hann myndi vilja  og árangurinn því ekki eins góður.

Eftir fitusogið er síðan mikilvægt að vera í þrýstings/teygjubuxum í 6-8 vikur á eftir. Þær þjóna þeim tilgangi að flýta fyrir því að bjúgur sem kemur á svæðið minnki hraðar og hverfi síðan. Til þess að flýta fyrir því ferli virkar oft vel að fara í svokallað LPG-nudd. Það er sogæðanudd sem meðal annars hjálpar undirhúðinni að losna við bjúg eftir fitusog.

Gangi þér vel og bestu kveðjur, 

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Þórdísi spurningu HÉR. 

Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Dea Medica.
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Dea Medica. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál