Lady Victoria Hervey fyrirsæta er staðfest sem ein af sérstökum gestum Reykjavik Fashion Festival í ár. Hervey hefur sýnt fyrir stærstu tískuhús heims eins og Christian Dior. Hún er spennt að koma til Íslands segir í fréttatilkynningu frá Reykjavík Fashion Festival, RFF.
„Hún mun einnig bregða sér á tískupallana. Eskimo models sér um casting í ár fyrir hönd RFF. Reykjavik Make up School mun leiða förðun með NYX cosmetics og hár stílisering mun vera í höndum Label M,“ segir í fréttatilkynningu.