Katrín hertogaynja klæddist settlegum og sætum ljósum kjól í garðveislu sem breska konungsfjölskyldan hélt um helgina. Kjóllinn er frá See by Chloé sem er lína sem þykir vera á viðráðanlegu verði.
Samkvæmt Vouge kostar kjóllinn tæpar 48 þúsund íslenskar krónur en við kjólinn var Katrín með belti frá Acne Studios og í skóm frá Moonsoon. Fötin sem hún klæddist þennan dag hafa því ekki verið mjög dýr fyrir krúnuna.