Segir fæðingarblettinn bæta sjálfstraustið

Mariana Mendez er ánægð með fæðingarblettinn sinn.
Mariana Mendez er ánægð með fæðingarblettinn sinn. skjáskot/Instagram

Mariana Mendez, 24 ára brasilískur stílisti er sjálfstraustið uppmálað og segir hún það vera út af stórum fæðingarbletti í andlitinu á sér. Margir kjósa að fjarlægja fæðingarbletti en sex ára gömul ákvað Mendez að hætta í leysigeislameðferðum. 

„Ég vil ekki virðast fín með mig, en mér finnst ég vera falleg og ástæðan fyrir því er fæðingarbletturinn minn,“ sagði Mendez. „Hann gerir mig sérstaka, fallegri. Fæðingarbletturinn gefur mér meira sjálfstraust og ég held að það sé út af því sem fólki finnst hann líka fallegur. 

Samkvæmt Huffington Post veit Mendez að það finnst ekki öllum fæðingarbletturinn jafn fallegur og henni finnst hann vera. Hún vonast þó til að veita öðru fólki innblástur í að sjá fegurðina í því sem gerir fólk sérstakt. 

Mariana Mendez.
Mariana Mendez. skjáskot/Instagram

👶🏻

A post shared by Mariana Mendes (@melzitahh) on Apr 9, 2017 at 5:12pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál