Miranda Kerr er ein eftirsóttasta fyrirsæta í heiminum í dag. Hún deildi nokkrum góðum áströlskum fegrunarráðum með lesendum Vogue.
„Ástralar kunna vel við hreina, heilbrigða, ferska húð og pínu ógreitt úfið hár,“ sagði Kerr. „Við fögnum náttúrulegri fegurð.“ En hún heldur að það sjáist svona vel vegna þess að Ástralar eru virkir og mikið utandyra.
Lífrænt
Kerr segir það að kjósa lífrænt ekki vera eitthvað sem er í tísku í Ástralíu, það sé hreinlega eitthvað sem fólk hafi alist upp við. Enda segir hún að það sé algengt að fólk rækti sitt eigið grænmeti. Hún segir það mikilvægt að borða hollt og lífrænt.
Hún skrúbbar sig með sandi
Í stað þess að eyða miklum peningum í rándýran skrúbb skrúbbar hún sig frekar með sandinum af ströndinni. En þegar Kerr er í Ástralíu segist hún fara að synda í söltum sjónum og skrúbba sig síðan með sandinum af ströndinni.
Góð ráð gegn flugþreytu
Miranda er frá Ástralíu, býr í Los Angeles og ferðast mikið, hún er því með góð ráð gegn flugþreytu. „Einn af mínum uppáhaldshlutum til þess að gera er að fara úr skónum og setja fæturna í grasið. Það er góð jarðtenging,“ sagði Kerr. „Annað sem ég geri er að fara í bað.“