Letizia Spánardrottning er þekkt fyrir fallegan klæðaburð og blandar oft saman ódýrari merkjum eins og Zöru og Mango við hátískufatnað.
Spænsku konungshjónin hafa verið í opinberri heimsókn í Bretlandi undanfarna daga og klæddist Letizia bleiku pilsi frá Topshop. Pilsið sem er uppselt kostaði upphaflega tæpar 11 þúsund krónur en lækkaði niður í fjögur þúsund á sumarútsölunum.
Það eru eflaust ekki margar drottningar sem klæðast vörum frá Topshop enda eru þær yfirleitt í fötum frá þekktum hönnuðum. Katrín hertogaynja hefur þó verið dugleg að klæðast fatnaði frá merkjum sem selja föt á lægra verði. Hins vegar er Katrín ekki drottning þó svo að hún verði það líklega í framtíðinni.
Upphaflega var pilisið auglýst af fyrirsætu í strigaskóm en með því að fara í fallega blússu og hæla var Letizia tilbúin í hvaða höll sem er í bleika pilsinu frá Topshop.