Í bleikri glimmer dragt

Zendaya er þekkt fyrir að fara sínar eigin leiðir þegar …
Zendaya er þekkt fyrir að fara sínar eigin leiðir þegar kemur að tísku. AFP

Ef að þú vilt virðast enn áhrifameiri er frábær hugmynd að skella mörghundruð Swarowski kristöllum á dragtina þína en leikkonan Zendaya er sönnunin fyrir því að það virki vel. 

Leikkonan mætti á fögnuð nýjustu útgáfu Variety, þar sem hún sjálf situr á forsíðunni, í tvílitaðri dragt frá Vivietta og vann hjörtu allra.

Með bleik-rauðu dragtinni klæddist hún einföldum skóm frá Ruthie Davis. 

Zendaya, sem leikur meðal annars hlutverk í nýjustu Spiderman kvikmyndinni, er þekkt fyrir að fara sínar eigin leiðir þegar það kemur að fatavali og vekur lang oftast mikla lukku fyrir klæðaburð sinn.

Vivietta er ítalskt tískuhús sem að opnaði árið 2009. Vivietta Ponti, hönnuður fatnaðarins sækir innblástur frá köttum, kvenlegum hlutum og bleikum litum. 

Á dragtinni eru hundruðir Swarovski kristallar.
Á dragtinni eru hundruðir Swarovski kristallar. AFP
Þessi kjóll leikkonunnar vakti einnig mikla lukku á frumsýningu nýjustu …
Þessi kjóll leikkonunnar vakti einnig mikla lukku á frumsýningu nýjustu mynd hennar, Spiderman. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál