Rihanna rokkar íþróttagallann

Rihanna var glæsileg í íþróttagallanum.
Rihanna var glæsileg í íþróttagallanum. skjáskot/Instagram

Söngkonan Rihanna hannaði nýverið nýja línu fyrir Puma. Söngkonan var að sjálfsögðu mætt í íþróttagalla á tískuvikunni í New York. 

Að undanförnu hafa gömlu góðu smelluíþróttabuxurnar gengið í gegnum endurnýjun lífdaga og segja má að söngkonan hafi tekið tískuna á næsta stig þegar hún mætti í eftirpartý eftir tískusýningu sína. 

Það skiptir greinilega ekki máli hvort að söngkonan klæðist galakjól eða íþróttafötum, hún er alltaf jafnglæsileg. Í bleikum pinnahælum við bleikan íþróttagalla, íþróttabrjóstahaldara og netabuxur stal hún senunni. Fötin eru hluti af Fenty-línu hennar fyrir Puma.

Afterparty #FENTYXPUMA

A post shared by βadgalriri⚓️ (@rihannafentzz) on Sep 11, 2017 at 9:20am PDT

Rihanna.
Rihanna. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál