Glæsileg í 85.000 króna pilsi

Unnusta Harrys geislaði á sínum fyrsta opinbera viðburði fyrir konungsfjölskylduna.
Unnusta Harrys geislaði á sínum fyrsta opinbera viðburði fyrir konungsfjölskylduna. AFP

Það hefur vart farið fram hjá neinum að skötuhjúin Harry Bretaprins og Meghan Markle hyggjast ganga í það heilaga næsta vor.

Markle hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarna mánuði og þykir hún mikil tískufyrirmynd kvenna um allan heim. Þá var greint frá því að kápa sem Markle klæddist á dögunum hefði selst upp á augabragði.

Skötuhjúin mættu saman á sinn fyrsta opinbera viðburð 1. desember og vakti klæðnaður Markle að sjálfsögðu vakið mikla eftirtekt. Pilsið sem hún skartaði er úr smiðju tískumerkisins Joseph, en samkvæmt frétt Telegraph kostar það 595 sterlingspund, eða tæpar 85.000 kr. Þá er handtaskan frá merkinu Strathberry.

Pilsið er frá tískumerkinu Joseph.
Pilsið er frá tískumerkinu Joseph. AFP
Hér sést forláta taska Markle vel.
Hér sést forláta taska Markle vel. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál