Melania Trump kvaddi árið 2017 í bleikum kjól frá Erdem. Forsetafrúin fagnaði nýárinu með eiginmanni sínum Donald Trump og syni þeirra Barron Trumo í Flórída.
Satínkjóllinn glitraði sem var við hæfi um áramótin. Bróderuð blóm gáfu kjólnum líf en blóm hafa verið áberandi í hönnun Erdem eins og sjá mátti meðal annars í línu Erdem fyrir H&M sem fáanleg var í haust á Íslandi.
Kjóll forsetafrúarinnar var þó töluvert dýrari en þeir sem fengust í H&M en kjóllinn kostaði um 5.500 dollara eða um 575 þúsund íslenskra króna. Þegar fjölmiðlar komust á snoðir um kjólinn var hann þó kominn á útsölu og kostaði ekki nema um 2.200 dollara eða um 230 þúsund krónur. Ekki er vitað hvort Trump hafi náð útsöluverðinu eða keypt kjólinn á fullu verði.
Á nýrársdag flaug Trump-fjölskyldan aftur heim í Hvíta húsið og klæddist forsetafrúin ekki neinum þægilegum heimagalla í flugið. Þröngar vínrauðar leðurbuxur urðu fyrir valinu og skór og Birkin-taska í stíl.