Katrín klæðist ódýru á nýju ári

Katrín hertogaynja var sumarleg í heimsókn sinni.
Katrín hertogaynja var sumarleg í heimsókn sinni. mbl.is/AFP

Katrín hertogaynja mætti í sína fyrstu opinberu heimsókn árið 2018 þegar hún heimsótti Reach Academy Feltham á miðvikudaginn. Hertogaynjan sá ekki tilefni til þess að klæðast dýrum merkjavörum í heimsókninni. 

Katrín klæðist oft dýrum og fínum merkjum á það einnig til að klæðast á alþýðlegan máta og það gerði hún í byrjun janúar enda kannski mánuður þar sem há fjárútlát eru ekki ofarlega í huga fólks. 

Daily Mail greinir frá því að vorlegur kjóll Katrínar sé óléttukjóll sem hún hafi einnig klæðst þegar hún gekk með Karlottu prinsessu fyrir um þremur árum. Kostaði kjóllinn 65 pund eða um níu þúsund krónur. 

Kápa Katrínar var líka á hóflegu verði og kostaði 199 pund eða um 28 þúsund íslenskra króna. Dress Katrínar fyrir utan skóna og veskið kostaði því undir 40 þúsund sem verður að teljast frekar lítið miðað við hvað Katrín á í fataskápnum. 

Katrín hertogaynja.
Katrín hertogaynja. mbl.is/AFP
Katrín hertogaynja klæddist kápu yfir vorlegan kjólinn.
Katrín hertogaynja klæddist kápu yfir vorlegan kjólinn. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál