Hárið bak við eyra ekki að ástæðulausu

Penelope Cruz greiddi hárið þannig að annar eyrnalokkurinn fengi að …
Penelope Cruz greiddi hárið þannig að annar eyrnalokkurinn fengi að njóta sín. mbl.is/AFP

Fjölmargar konur á Golden Globe-hátíðinni greiddu hárið til hliðar til að sýna fallega eyrnalokka sína. Flestar þeirra voru með skiptingu til hliðar við miðju þannig auðvelt var að setja hárið bak við eyra til þess að sýna glingrið.

Við fín tilefni er gaman að draga fram fallega skartgripi og að klippa hárið stutt eða greiða hárið upp er ekki eina leiðin til þess að leyfa eyrnalokkunum að njóta sín. Þessi aðferð stjarnanna að sýna lokkana með slegið hár svínvirkar en greinilegt að slétt slegið hár er á undanhaldi. 

Stjörnurnar áttu það sameiginlegt að skarta stórum eyrnalokkum, margar báru hangandi eyrnalokka á meðan 13 Reasons Why-stjarnan Katherine Langford var með smærri lokka en fleiri. 

Þrátt fyrir að leikkonan Madeline Brewer hafi skipt í miðju var hún með hárið bak við eyra öðrum megin og sást þar í óvenjulegan en afar fallegan lokk sem sem fylgdi lögun eyrans og minnti á slöngu. 

Madeline Brewer.
Madeline Brewer. mbl.is/AFP
Katherine Langford.
Katherine Langford. mbl.is/AFP
Jessica Chastain.
Jessica Chastain. mbl.is/AFP
Dove Cameron.
Dove Cameron. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál