Í ljósbleikri leðurdragt

Ljósbleiki liturinn fór Kate Hudson vel.
Ljósbleiki liturinn fór Kate Hudson vel. AFP

Pilsdragtir samanstanda oft af þröngu pilsi og jakka í dökkum lit. Leikkonan Kate Hudson sýndi það með ljósbleiku leðurpilsdragtinni sinni að pilsdragtir geta verið alls konar. 

Hudson mætti í þessari fallegu dragt þegar fatahönnuðurinn Stella McCartney kynnti nýja fatalínu sína. Með í för var móðir hennar, leikkonan Goldie Hawn, sem klæddist svörtum kjól. 

Fatnaður Hudson var afar vel settur saman þar sem hvítu skórnir með ökklabandinu pössuðu vel við hvíta skyrtuna. Ljósbleiki liturinn getur verið væminn en efnisvalið tók alla væmni úr litnum. Stutt klipping Hudson fullkomnaði síðan útlitið. 

Kate Hudson mætti með mömmu sinni, leikkonunni Goldie Hawn.
Kate Hudson mætti með mömmu sinni, leikkonunni Goldie Hawn. AFP
Kate Hudson.
Kate Hudson. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál