Fyrirsætan Chrissy Teigen geislaði í svörtum glitrandi kjól með hárri klauf á dögunum. Það fór mikil vinna í að klæða Teigen í kjólinn en stílisti fyrirsætunnar beitti ýmsum brögðum til þess að hún liti sem best út.
Það voru engin venjuleg nærföt sem stílistinn Monica Rose færði Teigen. Blúndunærbuxur fengu að víkja fyrir aðhaldsnærbuxum. Nærbuxurnar komu Teigen vel enda langt gengin með sitt annað barn en aðhaldsnærbuxur nýtast þó öllum. Nærbuxurnar eru kannski ekki þær þægilegustu en móta líkamann og ýta því inn sem þarf að fela.
Fáar konur sleppa brjóstahaldara en það gerði Teigen enda kjóllinn fleginn og slapp hún auk þess við allar brjóstahaldaralínur. Eitthvað þurfti þó að gera til þess að halda brjóstunum á sínum stað og þá var límband notað en Teigen lýsti því sem galdrinum samkvæmt People.