Þær stjörnur sem skinu skærast á rauða dreglinum á SAG-verðlaunahátíðinni í Los Angeles um helgina klæddu sig upp í glitrandi föt. Kjólarnir á rauða dreglunum voru ekki bara litríkir hedur líka glitrandi eins og sést á þessari samantekt Smartlands.
Leikkonan Nicole Kidman slær sjaldan feilnótu á rauða dreglinum og það gerði hún ekki þegar hún skein í kjól frá Armani. Lupita Nyong'o var líka glæsileg í kjól frá Ralph & Russo en eins og Kidman fær hún yfirleitt háa einkunn á rauða dreglinum.