Stígvélin náðu nærri upp að nára

Jada Pinkett Smith var flott á Sundance-kvikmyndahátíðinni.
Jada Pinkett Smith var flott á Sundance-kvikmyndahátíðinni. AFP

Stundum eru skórnir í hálfgerðu aukahlutverki hjá stjörnunum þegar þær skarta rándýrum merkjavörunum. Svo var þó ekki raunin þegar leikkonan Jada Pinkett Smith mætti í háum stígvélum frá Balmain á viðburð á Sundance-kvikmyndahátíðinni í vikunni. 

Stígvélin eru með rúmlega 11 sentímetra hæl og ná yfir hnén eða í rauninni nærri upp að nára ef þú ert bara 1,52 hæð eins og Pinkett Smith. Þau eru á útsölu núna og kosta ekki nema 1.122 dollara eða um 115 þúsund krónur, ná yfir hnén eða nærri upp að nára. 

Há stígvél eru oft svört og pöruð við svartar flíkur en leikkonan valdi gallaefni við brún stígvélin sem kemur einstaklega vel út þrátt fyrir að lítið sjáist í gallabuxurnar. 

Jada Pinkett Smith var flott í uppháum stígvélum.
Jada Pinkett Smith var flott í uppháum stígvélum. AFP
Stígvél frá Balmain.
Stígvél frá Balmain. skjáskot/Farfetch
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál