Gamall hárskrautsdraugur er genginn aftur

Fyrirsætan Bella Hadid gekk fyrir Prabal Gurung.
Fyrirsætan Bella Hadid gekk fyrir Prabal Gurung. AFP

Hártískan gengur í hringi eins og annað. Á tískuvikunni í New York sást gamall hárdraugur í hári þeirra sem gengu fyrir Prabal Gurung. Hárgreiðslumaðurinn Anthony Turner sá um hárið á fyrirsætunum en hann vildi leyfa fötunum að njóta sín. 

Um er að ræða teygjanlegan kamb úr plasti en margir áttu einn slíkan í kringum aldamótin. Elle greinir frá því að hugmyndina að hárstílnum hafi Turner fengið frá flottum stelpum í London á leiðinni í jóga. 

Turner telur líklegt að þetta verði vinsælt aftur nú þar sem að Hadid-systurnar, Gigi og Bella, og Ashley Graham hafi sést með kambinn en allar þrjár eru meðal vinsælustu fyrirsætanna í heiminum í dag. 

Ashley Graham á tískusýninu Prabal Gurung.
Ashley Graham á tískusýninu Prabal Gurung. AFP
Gigi Hadid á tískusýningu Prabal Gurung.
Gigi Hadid á tískusýningu Prabal Gurung. AFP
Kamburinn heldur hárinu frá andlitinu.
Kamburinn heldur hárinu frá andlitinu. AFP
AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál