Mátaði bara einn brúðarkjól

Amy Schumer var í brúðarkjól frá Monigue Lhuiller.
Amy Schumer var í brúðarkjól frá Monigue Lhuiller. skjáskot/Instagram

Brúðarkjólavalið getur verið oft verið höfuðverkur, grínleikkonan Amy Schumer fékk þó engan höfuðverk þegar hún valdi sinn brúðarkjól enda hafði hún lítinn tíma til þess að hugsa málið. 

„Sendu mér skilaboð þegar þú vaknar við Chris viljum gifta okkur,“ sendi Schumer stílistanum sínum en Schumer giftist kærasta sínum, Chris Fisher, með stuttum fyrirvara á þriðjudaginn. Leesa Evan sagði People frá því hvernig Shcumer valdi brúðarkjólinn en hún hafði bara fjóra daga til þess að undirbúa brúðkaupið. 

Schumer klæddist klassískum brúðarkjól frá Monigue Lhuiller og var kjóllinn bæði sá fyrsti og eini sem Shchumer mátaði. Evans segir að Schumer hafi viljað þægilegan kjól sem henni lið eins og hún sjálf í og gæti skemmt sér í. Kjóllinn kostar 5.490 dollara eða rúma hálfa milljón íslenskra króna. 

Við kjólinn var hún í flotbotna skóm og eini skartgripurinn sem hún var með var hringurinn frá Fisher, enda Schumer lítið fyrir skargripi. 

Amy Schumer var flott á brúðkaupsdaginn.
Amy Schumer var flott á brúðkaupsdaginn. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál