Sex ára með 180 þúsund króna tösku

Beyoncé and Blue Ivy Carter pössuðu vel upp á töskurnar …
Beyoncé and Blue Ivy Carter pössuðu vel upp á töskurnar sínar. AFP

Blue Ivy Carter dóttir Beyoncé og Jay-Z vakti athygli á körfuboltaleik um helgina ásamt móður sinni, ömmu og stjúpafa. Blue Ivy sem er sex ára var í merkjavöru frá toppi til táar sem kostaði sitt. 

Blue Ivy var með bláa tösku frá Louis Vuitton sem samkvæmt Daily Mail kostar 1.820 dollara eða um 180 þúsund íslenskra króna. Þrátt fyrir að Blue Ivy hafi verið með dýrari tösku en móðir sín þá var amma hennar með dýrustu töskuna á svæðinu en Tina Knowles var með flotta Gucci tösku sem kostar hátt í hálfa milljón. 

Stjörnubarnið var töffaralegt í flottum leðurjakka frá Givenchy sem kostar 1.199 dollara eða um 120 þúsund íslenskra króna. Jakkinn er barnaútgáfa af fullorðinsjakka frá sama merkinu. 

Beyonce, Blue Ivy Carter, Tina Knowles og Richard Lawson.
Beyonce, Blue Ivy Carter, Tina Knowles og Richard Lawson. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál