Þorirðu að gera eitthvað öðruvísi í sumar?

Fallegt sumar frá Sonia Rykiel.
Fallegt sumar frá Sonia Rykiel. mbl.is/Pinterest

Stuttar buxur, hvort heldur sem er stuttar útvíðar við ökkla, eða stuttbuxur í alls konar litum verða allsráðandi í sumar. Einnig eru síðar útvíðar buxur áberandi fyrir sumarið. Ertu tilbúin í herlegheitin?

Tískan um þessar mundir fyrir konur er skemmtileg. Hún er svolítið gauraleg, með miklu af línum og munstrum. Áberandi litir og mikil gleði. En inn á milli er sterk lína með klassískum svörtum hlutum sem margar konur eiga í fataskápnum.

Sonia Rykiel

Fatnaður frá Sonia Rykiel er guðdómlega fallegur þetta sumarið. Stuttar buxur og mikið af línum gerir línuna ferska. Franska tískumerkið er á heimavelli þegar kemur að útvíðum buxum í anda sjöunda áratugarins. Sjón er sögu ríkari.



Dolce & Gabbana

Munstraðir víðir rómantískir kjólar í alls konar litum verða einnig áberandi eins og sjá má á línu Dolce & Gabbana. En engin kona þarf að fá fyrir hjartað, því litli svarti kjóllinn er lykilhluturinn í fataskápnum á þessu ári. Jafnvel í sumar, sem er sjaldgæf sjón hjá evrópsku hátískumerkjunum. Gott dæmi um þetta er í herferð Dolce & Gabbana.

Stella McCartney

Tískuhúsið Stella McCartney býður upp á gallabuxur í alls konar litum sem og gallafatnað sem verður vinsælt í sumar. Hugsaðu bleikar ökklasíðar gallabuxur við bleika silkiskyrtu. Þá ertu að hugsa um þig í sumar. 

Stella McCartney negldi þetta eins og sjá má hér.

Saint Laurent

Fyrir þær sem eru ekki ginkeyptar fyrir fyrrgreindar hugmyndir þá er nokkuð víst að eitt merki muni höfða til íslensku konunnar í sumar. Það er Saint Lauren. Fyrir utan mjög fallegar svartar klæðilegar flíkur, er mikið um stórar yfirhafnir sem henta íslensku sumri, í bland við stutta leðurkjóla og flíkur sem munu henta litlu eyjunni okkar vel.



Fyrir skynsömu hagnýtu konuna er fullvíst að síðar útvíðar buxur eru ekki bara fyrir næsta sumar heldur einnig veturinn. Franska merkið Gerard Darel hefur í marga áratugi boðið upp á þessar buxur, en notar þær nú í herferð sinni fyrir næsta haust. 

Hér má sjá Charlotte Gainsbourg taka þennan stíl á næsta stig.

Charlotte Gainsbourg í útvíðum buxum í herferð Gerard Darel fyrir …
Charlotte Gainsbourg í útvíðum buxum í herferð Gerard Darel fyrir haustið. mbl.is/Pinterest
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál