Greiðir sér ekki á frídögum

Keira Knightley beitir ekki flóknum aðferðum þegar kemur að útlitinu.
Keira Knightley beitir ekki flóknum aðferðum þegar kemur að útlitinu. AFP

Breska leikkonan Keira Knightley er ekki mikið fyrir að mála sig. Hún lætur það duga að vera máluð í vinnunni en annars reynir hún að hafa húðumhirðuna sem einfaldasta. 

Í viðtali við ELLE segist ekki einu sinni greiða sér þegar hún á frí. Sömuleiðis notar hún lítinn farða. Hún málaði sig þó meira í upphafi ferils síns en segist þroskast með aldrinum. „Þegar þú eldist verður þú öruggari í eigin skinni, vissari með það sem þér líkar og líkar ekki.“

„Sannleikurinn er sá að ég á enga fegrunarrútínu, þannig að ég verð að segja það eina sem ég geri í fegrunarrútínunni er að setja á mig rakakrem,“ sagði Knightley í viðtalinu. Þegar hún þrífur af sér farða notar hún bara sápu og vatn. Tvisvar á ári fer svo hún síðan á andlitsmeðferð. 

Starfs síns vegna er Knightley oft máluð af fagfólki. Hún hefur lært eitt og annað af því fólki sem hún nýtir þegar hún bregður undir sig betri fætinum og málar sig. Að blanda saman farða og rakakremi segir hún vera gott ráð. Hún segir það gefa húðinni gljáa og húðin verði eðlilegri. 

„Oft set ég á mig skæran lit á neglurnar þegar ég klára tökur af því ég verð alltaf að vera með þær venjulegar þegar ég er að vinna. Svo um leið og ég klára verð ég pínu brjáluð.“

Keira Knightley.
Keira Knightley. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál