Í 45 þúsund króna kápu

Kápa Meghan Markle passaði vel við peysuna hennar.
Kápa Meghan Markle passaði vel við peysuna hennar. AFP

Meghan Markle og Harry Bretaprins heimsóttu Birmingham í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna. Meghan sem velur oft buxur fram yfir kjóla og pils klæddist að sjálfsögðu buxum enda táknrænt fyrir daginn. 

Við svörtu ökklabuxurnar frá Alexander Wang var Meghan í svörtum pinnahælum frá Manolo Blahnik. Svörtu buxurnar komu ekki í veg fyrir að Meghan klæddist dökkblárri kápu. Kápan passaði reyndar afskaplega við hvítu peysuna frá All Saints. 

Kápan er frá bandaríska merkinu J. Crew og kostar 330 pund á Net-a-Porter eða um 45 þúsund íslenskar krónur. 

Meghan Markle.
Meghan Markle. AFP
Meghan Markle og Harry Bretaprins.
Meghan Markle og Harry Bretaprins. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál