Í eins dragt, hvor var flottari?

Tilda Swinton og Keira Knightley féllu báðar fyrir Chanel dragtinni.
Tilda Swinton og Keira Knightley féllu báðar fyrir Chanel dragtinni. Samsett mynd

Buxnadragtir hafa sjaldan verið jafn heitar og einmitt nú. Stjörnurnar keppast um að mæta í buxnadrögtum á rauða dregilinn og mættu leikkonurnar Tilda Swinton og Keira Knightley í eins smóking á sitthvora frumsýninguna í sitthvorri heimsálfunni. 

Þær Knightley og Swinton féllu greinilega báðar fyrir fallegum smóking fyrir konur með buxum í útvíðu sniði frá Chanel.

Swinton er vön að fara sínar eigin leiðir í klæðavali og kom því ekki jafn mikið og óvart og Knightley sem mætti með slaufu til þess að toppa dressið. Það verður þó að segjast að Swinton hafi gengið betur í skóvalinu en ómögulegt er að segja til um hvorri tókst betur upp, eða hvað?

Tilda Swinton á Berlinale í febrúar.
Tilda Swinton á Berlinale í febrúar. AFP
Keira Knightley á Sundance-kvikmyndahátíðinni.
Keira Knightley á Sundance-kvikmyndahátíðinni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál