Í stígvélum í stað buxna

Beyoncé og Rihanna voru að vinna með sama útlitið á …
Beyoncé og Rihanna voru að vinna með sama útlitið á Coachella. Samsett mynd

Coachella-tónlistarhátíðin stendur yfir í Bandaríkjunum og um helgina kom Beyoncé fram ásamt stöllum sínum úr Destiny's Child. Ef eitthvað er að marka fatnað Beyoncé, Kelly Rowland og Rihönnu um helgina eru stígvél sem ná upp á lærið aðalmálið. 

Beyoncé skipti að sjálfsögðu nokkrum sinnum um föt á tónleikunum en fötin komu frá tískuhúsinu Balmain. Kelly Rowland var í eins glitrandi stígvélum og Beyoncé þegar hún og Michelle Williams sungu með henni lög Destiny's Child. 

Michelle Williams var í buxum á meðan Beyoncé og Kelly …
Michelle Williams var í buxum á meðan Beyoncé og Kelly Rowland voru í stígvélum. skjáskot/Instagram

Beyoncé klæddist síðan svörtum latex-stígvélum sem náðu upp fyrir hné á öðrum tímapunkti á tónleikunum. Dansarar hennar voru einnig í stígvélum en trix Beyoncé er að klæðast samfellu og nælonsokkabuxum.

Beyoncé í klæðnaði frá Balmain.
Beyoncé í klæðnaði frá Balmain. skjáskot/Instagram

Rihanna var líka að vinna með há stígvél á hátíðinni en stígvél hennar voru öllu umdeildari en þau sem Beyoncé var í. Rihanna sást skemmta sér á tónleikum Beyoncé í Ugg-stígvélum frá Y/Project. 

Rihanna.
Rihanna. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál