Vildi líta út eins og skopteikning

Krystina Butel hefur látið eiga við andlit sitt.
Krystina Butel hefur látið eiga við andlit sitt. skjáskot/Instagram

Líkamsræktareigandinn Krystina Butel er búin að fara í margar aðgerðir til þess að reyna að líkjast skopmynd. Butel hefur eytt hátt í 30 milljónum í útlit sitt en hún segist vera einlægur aðdáandi lýtaaðgerða. 

Daily Mail greinir frá því að Butel sem er 32 ára hafi farið í fimm brjóstastækkanir auk þess sem hún fari reglulega í bótox og fái sér fyllingar í varirnar. Hún missti 76 kíló þegar hún fór í offituaðgerð og var markmiðið að líta út eins og skopmyndateikning af sjálfri sér sem teiknuð var af henni þegar hún var 15 ára á Ibiza.

„Þegar ég sá skopteikninguna fyrst á Ibiza fyrir öllum þessum árum sá ég hvernig ég vildi líta út,“ sagði Butel. „Hún var með brjóst eins og strandbolta, stórar varir og pínulítið mitti. Allt við hana var svo ýkt. Ég var öfundsjúk út í hana og á þeirri stundu vissi ég hvað ég vildi í lífinu,“ segir Butel um skopteikninguna. 

Butel hefur borgað um 27 milljónir fyrir útlit sinn en hún hefur getað borgað fegrunaraðgerðirnar með peningum sem hún fær í gegnum fyrirtæki sín en hún á bæði hárgreiðslustöð og líkamsrækt. 

Þó svo að Butel hafi náð að uppfylla draum sinn er hún ekki hætt í lýtaaðgerðunum. Þegar hún horfir á skopteikninguna núna finnst henni eins og skopteikningin þurfi fleiri aðgerðir, stærri brjóst, fyllingar og nefaðgerð. 

More #leggings 😂😂😂

A post shared by Krystina Butel (@krystinabutel) on Apr 8, 2018 at 2:39am PDT






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál