Beyoncé gerði allt vitlaust á tónlistarhátíðinni Coachella um síðustu helgi. Söngkonan er þekkt fyrir kraftmikinn dans og fyrir að leggja allt í sölurnar á tónleikunum. Margir þekkja það að það getur verið erfitt að halda förðuninni fínni á meðan maður svitnar en förðunarfræðingur Beyoncé leysti verkefnið vel.
Sir John sá um að farða söngkonuna á tónleikunum upplýsti í viðtali við Allure hvernig hann fór að því að halda söngkonunni óaðfinnanlegri í hitanum og svitanum á sviðinu.
1. Ekkert rakakrem
Sir John mælir með því að fólk sem vill halda förðuninni fínni allan daginn í miklum hita sleppi rakakreminu þann daginn. Í stað þess mælir hann með farðagrunni og olíulausri sólarvörn.
2. Tvöfalt lag
Förðunarfræðingurinn mælir með því að nota tvöfalt lag af farða til þess að láta förðunina endast. Hann segist nota bæði kinnalit í kremformi sem og púðurkinnalit ofan á. Það sama gerði hann með augnskuggann. Þá notaði hann Nars Pro-Prime Smudge Proof augnskuggagrunn og blöndu af ljósfjólubláum og kopar glimmer augnskuggageli frá Lemonhead.
3. Ekki baka andlitið
Sir John tekur svona til orða þar sem hann er á móti því að nota mikið púður á andlitið. Hann segist nota laust púður eða hálfgegnsætt púður.
4. Þerra andlitið
Á milli laga hafði Sir John minna en mínútu til þess að laga Beyoncé. Hann passaði að þerra andlit hennar áður en hann púðraði hana. Hann segir að pappír til þess að rúlla upp sígarettur séu bæði góðar og ódýrar.
5. Undirbúa varirnar
Til þess að halda varalitnum lengur á mælirSirJohn með að nota sykurskrúbb áður en varaliturinn er settur á. Á varirnar notaði hann síðan Pro-Matte Les Chocolats Liquid Lipstick frá L'Oréal Paris.