Sarah Jessica Parker hannar brúðarkjóla

Leikkonan Sarah Jessica Parker í hönnun Oscar de la Renta.
Leikkonan Sarah Jessica Parker í hönnun Oscar de la Renta. mbl.is/AFP

Sarah Jessica Parker klæddist einum eftirminnilegasta brúðarkjól kvikmyndasögunnar í kvikmyndinni Sex and the City. Parker hefur nú hannað fatnað fyrir brúðkaup í samstarfi við bandaríska fyrirtækið Gilt undir nafninu SJP by Sarah Jessica Parker Bridal. 

Ekki er bara um brúðarkjóla að ræða heldur líka fatnað sem henta við hin ýmsu tilefni sem tengjast brúðkaupum. Brúðarfatnaðurinn er fjölbreyttur en þar er að finna hefðbundna brúðarkjóla en líka brúðarsamfestinga og samfellur undir pils. Kostar fatnaðurinn á bilinu 295 dollara upp í 2.395 dollara.  

Einnig er að finna skó frá SJP, merki Parker, sem henta við tilefnin og þeir eru ekki endilega hvítir. Í samtali við WWD segir Parker að konur hafi lengið komið og leita að brúðarskóm hjá SJP, skóm sem voru ekki endilega hannaðir sem brúðarskór. 

ljósmynd/Gilt.com
ljósmynd/Gilt.com
ljósmynd/Gilt.com
ljósmynd/Gilt.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál