Sigmundur Davíð með nýtt útlit

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er kominn með alskegg.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er kominn með alskegg. Ljósmynd/Facebook

Skeggtískan er að ná nýjum hæðum þessa dagana og virðast nú öll vígi vera fallin þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, er kominn með alskegg (eða allavega á Facebook). Sigmundur Davíð hefur hingað til lagt mikið upp úr því að vera vel rakaður og með snyrtilega klippingu en nú ber við annan tón. Hann er kominn með alskegg og hárið er örlítið síðara en vanalega. 

Smartland sagði frá því fyrr í vikunni að Jón Gnarr væri nánast óþekkjanlegur þar sem hann er kominn með alskegg og seventís-gleraugu. Sigmundur Davíð er ekki kominn meðseventís-gleraugu en skeggið breytir honum töluvert. 

mbl.is/Kristinn Magnússon

Tískusérfræðingar Smartlands hafa nú þegar rýnt í þetta nýja útlit og er niðurstaðan sú að það fari þessum herramanni vel að vera örlítið frjálslegri en venjulega. Á Facebook-síðu sinni ýjar hann að því að þetta sé víkingalúkk en við erum ekki sammála því. Þetta útlit hefur ekkert með víkinga að gera heldur er þetta hreinræktað tískutrend sem er tröllríða öllu núna. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál