Allar brúðir vilja hafa húðina fullkomna á brúðkaupsdaginn og þarf undirbúningur að byrja nokkrum vikum fyrir stóra daginn.
Ef brúður ætlar í húðhreinsun er ráðlagt að gera það minnst tveimur vikum fyrir stóra daginn. Kvöldið áður er gott að nota hreinsi- og raka- eða næringarmaska til að þétta og birta yfir húðinni.
Falleg förðun byggist á góðum grunni og því er mikilvægt að vera með góðan undirfarða sem hentar hverri húðgerð fyrir sig og við mælum með endingargóðum farða sem ekki þarf að lagfæra mikið yfir daginn og kvöldið.
Ljómi og fallegur highlighter gefur húðinni náttúrulegan og heilbrigðan blæ sem kemur einstaklega vel út í myndatöku.
Til þess að förðunin endist allan daginn og allt kvöldið mælum við eindregið með að nota All Nighter Setting Spray!